Árið til þessa það kaldasta á öldinni

Hlýleg birtingarmynd kuldans þessa dagana.
Hlýleg birtingarmynd kuldans þessa dagana. mbl.is/Golli

Meðalhiti ársins fyrstu ellefu mánuði í Reykjavík er 5 stig, sem er það lægsta sömu mánuði síðan árið 2000, en 0,3 stigum ofan meðalhita áranna 1961 til 1990, -0,9 undir meðalhita síðustu tíu ára. Á lista sem sýnir meðalhita sama hluta árs aftur til 1871 er árið í 56. til 57. sæti af 145. Hlýjast var á síðasta ári, 6,6 stig, en kaldast 1892, 2,9 stig. Á Akureyri er meðalhiti ársins til þessa 4,4 stig, 0,7 stigum ofan meðalhita áranna 1961 til 1990 og -0,4 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára, að því er fram kemur í yfirliti Trausta Jónssonar á vef Veðurstofunnar.

Í Reykjavík er úrkoma fyrstu 11 mánuði ársins 925 mm, um 28 prósent umfram meðallag áranna 1961 til 1990. Þetta er mesta úrkomuvik á þessum tíma síðan 2007, en þá var úrkomumagnið nánast það sama og nú. Fara þarf aftur til áranna 1991 og 1989 til að finna meira. Á Akureyri mældist úrkoma fyrstu 11 mánuði ársins um 10 prósent umfram meðallag, samt mun minna en í fyrra.

Meðalhiti haustsins í Reykjavík, þ.e. október og nóvember samkvæmt skilgreiningu Veðurstofunnar, var 3,5 stig. Það er 0,7 stigum ofan meðallags áranna 1961 til 1990, en 0,1 stigi neðan meðallags síðustu tíu ára. Á Akureyri var meðalhiti haustsins 2,8 stig, 1,5 stigi ofan meðallags 1961 til 1990. Haustið var mjög úrkomusamt í Reykjavík, en á Akureyri í tæpu meðallagi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert