Fagnar niðurstöðunni

Ásta Kristín Andrésdóttir eftir dómsuppkvaðninguna í dag.
Ásta Kristín Andrésdóttir eftir dómsuppkvaðninguna í dag. Morgunblaðið/Jón Pétur Jónsson

Landspítalinn hefur birt yfirlýsingu frá vegna dómsuppkvaðningar í máli ríkissaksóknara gegn spítalanum og Ástu Kristínu Andrésdóttur sem sýknuð voru af ákæru um manndráp af gáleysi og brot á hjúkrunarlögum.

Í yfirlýsingunni segir að málsmeðferðin sýni að úrbóta sé þörf við meðferð mála af þessu tagi. Dómsorðið staðfesti það mat Landspítala að aldrei hefði átt að ákæra og fagnar Landspítalinn niðurstöðunni.

„Alvarleg atvik í heilbrigðisþjónustu eru nær alltaf afleiðing af fjölda atburða sem raðast saman með alvarlegum afleiðingum, eins og raunin var í þessu tilviki þar sem  andlát hlaust af. Landspítali gerði ítarlega innri rannsókn á málinu, s.k. rótargreiningu (root-cause-analysis) sem staðfesti þá niðurstöðu,“ segir í yfirlýsingunni.

„Slík aðferðarfræði hefur rutt sér til rúms í heilbrigðisþjónustunni á undanförnum árum á alþjóðavísu. Tilgangur slíkrar skoðunar, sem ráðist er í þegar fyrir liggur að ekki var um ásetning eða afglöp að ræða, er að leita orsaka þegar alvarleg atvik verða til að unnt sé að fyrirbyggja að slíkt endurtaki sig.“

Segir í yfirlýsingunni að hið mikilvæga starf í gæða- og öryggismálum standi og falli með því að ríkjandi séu opin skoðanaskipti, skráning og úrvinnsla atvika, sérstaklega alvarlegra atvika, og að stöðugt sé unnið að umbótum á þjónustunni. Þeirri vegferð muni Landspítali halda áfram.

Yfirlýsinguna má lesa í heild sinni á vefsíðu Landspítalans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert