Kynnti drög að loftslagssamkomulagi

Laurent Fabius
Laurent Fabius AFP

Kynnt voru í dag drög að hnattrænum samningi um aðgerðir í loftslagsmálum með þátttöku allra ríkja en Laurent fabius, forseti 21. Aðildaríkjaþings loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (COP21), kynnti þau samkvæmt fréttatilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.

„Í ræðu á stuttum fundi í dag þar sem samningsdrögunum var dreift sagði Fabius að búið væri að ná saman að mestu leyti um mikilvæg atriði á borð við hvernig standa skuli að aðlögun að loftslagsbreytingum, tækniyfirfærslu o.fl. Enn á þó eftir að komast að niðurstöðu um veigamikil atriði er varða m.a. fjármögnun aðgerða, eftirfylgni með markmiðum ríkja til lengri tíma og ábyrgðarskiptingu milli ríkja og ríkjahópa. Drögin nú eru miklum mun skýrari en þau sem viðræðuhópur skilaði til þingsins um síðustu helgi og dregur betur fram kosti varðandi helstu ágreiningsefni. Fabius sagði að vel hefði miðað, en enn væri þó mikil vinna eftir á lokasprettinum,“ segir ennfremur.

Haft er eftir Sigrúnu Magnúsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra, að ánægjulegt sé að kominn sé skriður á viðræðurnar. „Tilfinningin er sú að nú þokist hratt í samkomulagsátt en björninn er þó ekki unninn. Þótt búið sé að landa mikilvægum atriðum er varða einstaka þætti samningsins á eftir að tengja þá saman og búa til heildarramma utan um nýtt samkomulag. Næstu sólarhringar fara í að sníða þennan ramma og ég er vongóð um að það takist.“

Fyrr í dag ávarpaði Sigrún gesti á hliðarviðburði Veðurstofu Íslands um bráðnun jökla á Norðurslóðum sem haldinn var í norræna skálanum á Parísarfundinum. Þar hafi vísindamenn frá Íslandi og Danmörku farið yfir þær öru breytingar sem orðið hafa á ísþekju á Norðurlöndum og horfurnar framundan. Þá var kynnt samnorrænt verkefni, SVALI, um vöktun þessara breytinga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert