Var sviptur rétti til að bera fálkaorðuna

Ólafur Ragnar hefur svipt Sigurði Einarssyni rétti til þess að …
Ólafur Ragnar hefur svipt Sigurði Einarssyni rétti til þess að bera fálkaorðuna. mbl.is

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sem er stórmeistari íslensku fálkaorðunnar, hefur svipt Sigurð Einarsson, fyrrverandi stjórnarformann Kaupþings, rétti til þess að bera fálkaorðuna, sem forsetinn sæmdi Sigurð hinn 1. janúar 2007.

Þetta gerði forsetinn á grundvelli 13. greinar forsetabréfs um hina íslensku fálkaorðu frá 31. desember 2005. Greinin er svohljóðandi: „Stórmeistari getur, að ráði orðunefndar, svipt hvern þann, sem hlotið hefur orðuna en síðar gerst sekur um misferli, rétti til að bera hana.“

Þetta kemur fram á heimasíðu forseta Íslands.

Fyrir forystu í útrás

Sigurður var sæmdur riddarakrossi fálkaorðunnar „fyrir forystu í útrás íslenskrar fjármálastarfsemi“ eins og segir í umsögn á vef Stjórnartíðinda.

Frá því að Sigurður Einarsson hlaut fjögurra ára fangelsisdóm í febrúar sl., sem hann afplánar nú á Kvíabryggju, hefur það verið umdeilt að Sigurður hefði yfir riddarakrossi fálkaorðunnar að ráða. Guðni Ágústsson, formaður orðunefndar, sagði í fjölmiðlum í febrúar sl. að orðunefnd væri skylt að fara yfir mál Sigurðar.

„Eftir að við höfðum kynnt okkur hvernig með mál sem þetta er farið á Norðurlöndum, komumst við í orðunefnd að þeirri niðurstöðu að við vildum svipta Sigurð réttinum til þess að bera orðuna og lögðum til við forseta Íslands að hann svipti hann réttinum til þess að bera hana,“ sagði Guðni í samtali við Morgunblaðið í gær.

Forseti Íslands er stórmeistari

Guðni sagði að forseti Íslands, sem er stórmeistari íslensku fálkaorðunnar, hefði svipt Sigurða réttinum til þess að bera orðuna fyrir nokkrum vikum.

Guðni var spurður hvort þetta væri endanleg ákvörðun, eða hvort Sigurður gæti síðar meir borið orðuna á nýjan leik: „Ég tel að þetta þýði það að Sigurður hafi endanlega verið sviptur orðunni og geti ekki borið hana á ný,“ sagði Guðni Ágústsson, formaður orðunefndar.

Sigurður Einarsson var dæmdur í fjögurra ára fangelsi í febrúar.
Sigurður Einarsson var dæmdur í fjögurra ára fangelsi í febrúar. mbl.is/Þórður
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert