Vill að Katrín leiði utanþingsstjórn

Róbert Marshall, þingmaður Bjartrar framtíðar.
Róbert Marshall, þingmaður Bjartrar framtíðar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Það þarf að bjarga Íslandi. Við erum föst í fari átakastjórnmála sem valda stöðnun og hnignun. Umræðan er ónýt og leiðir til lélegra ákvarðana. Þetta hefur aldrei verið jafn augljóst og nú,“ segir Róbert Marshall, þingmaður Bjartrar framtíðar, á Facebook-síðu sinni í dag. Endurhugsa þurfi hlutina og endurskipuleggja segir hann.

„Við sem aðhyllumst umbætur og alvöru aðgerðir á sviði umhverfis, jafnréttis, mennta- og heilbrigðismála þurfum að skipa okkur í sveit saman. Við þurfum að útbúa sameiginlega aðgerðaáætlun fyrir næstu kjörtímabil. Stilla sameiginlega uppá lista í öllum kjördæmum og stilla upp ríkisstjórn þar sem hæfileikar, bakgrunnur og verkefni ráða mannvalinu,“ segir hann.

Róbert segist sjá fyrir sér stjórn sem að mestu yrði skipuð utanþingsráðherrum sem kynnt yrði fyrir kosningar og leidd yrði af Katrínu Jakobsdóttur, formanni Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. „Verkefnin framundan eru risavaxin og munu reyna á okkur en við getum þetta. Það er von. Björgum Íslandi.“

Katrín Jakobsdóttir, formaður VG.
Katrín Jakobsdóttir, formaður VG. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert