1% Albana veitt hæli

Flóttafólk úr röðum jasída fer yfir landamærin að Sýrlandi. Um …
Flóttafólk úr röðum jasída fer yfir landamærin að Sýrlandi. Um 20.000 flóttamenn, flestir þeirra jasídar, komust af Sinjar-fjalli í Írak eftir að hafa flúið þangað vegna árása vígasveita íslamista sem líta á jasída sem djöfladýrkendur og eru sagðar hafa reynt að útrýma þeim. Trú Jasída sameinar ýmsa þætti úr kristni og íslam. Photo: AFP

Langflestum Albönum sem sóttu um hæli í ríkjum Evrópusambandsins á þriðja ársfjórðungi var synjað um hæli eða 99%. Aftur á móti fengu 98% þeirra Sýrlendinga sem sóttu um hæli fjórðungnum jákvætt svar.

Á Íslandi sóttu 106 Albanar um hæli á Íslandi fyrstu 11 mánuðum ársins og líkt og undanfarin ár fá flestir ef ekki allir synjun en víðast hvar í Evrópu er ekki litið á Albana sem flóttamenn (refugee) heldur förufólk (migrants) eða með öðrum orðum fólk sem flýr heimalandið af efnahagslegum ástæðum ekki vegna þess að líf þeirra sé í húfi.

Klea og yngri bróðir henn­ar Kevi sem er með slíms­eigju­sjúk­dóm. …
Klea og yngri bróðir henn­ar Kevi sem er með slíms­eigju­sjúk­dóm. Þau komu hingað til lands ásamt for­eldr­um sín­um. Fjöl­skyld­an sótti um hæli en var synjað og er nú far­in úr landi. Ljósmynd/DV


Langflestir þeirra sem sótt hafa um vernd á Íslandi það sem af er ári koma frá Albaníu, eða 34%, en umsóknir einstaklinga frá Albaníu, Kósóvó og Makedóníu nema samanlagt allt að helmingi allra umsókna. 

Rétt tæplega helmingur þeirra umsókna sem hefur verið synjað á árinu (til og með 31. október) eru umsóknir frá ríkisborgurum Albaníu (45%) og tæplega tvær af hverjum þremur synjunum eru tilkomnar vegna umsókna frá ríkisborgurum Albaníu, Kósóvó og Makedóníu samanlagt.

Hverju ríki í Evrópu er í sjálfvald sett hvernig þau skilgreina Albaníu en nánast alls staðar er Albanía álitið öruggt land líkt og Kósóvó og Makedónía.

Photo: Mbl.is


Á vef Útlendingastofnunar segir að flóttamanna- og hæliskerfið er neyðarkerfi, ætlað fólki sem óttast um líf sitt og frelsi. Það sem af er þessu ári hefur Útlendingastofnun veitt 55 manns hæli eða aðra alþjóðlega vernd og árið 2014 voru slíkar veitingar 43 talsins. Þarna eru ekki meðtalin útgefin dvalarleyfi til kvótaflóttafólks en slík leyfi skipta tugum.

Til þess að eiga rétt á alþjóðlegri vernd, því að teljast flóttafólk og eiga rétt á hæli að lögum og samkvæmt alþjóðasáttmálum þarf fólk að vera í einhvers konar hættu og eiga ekki möguleika á viðunandi vernd og úrræðum í heimalandi sínu. Þetta leiðir bæði af flóttamannasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskum lögum sem sett eru á grundvelli hans.

Efnahagslegar aðstæður fela ekki í sér aðsteðjandi hættu, um það eru alþjóðasáttmálar og lög skýr. Því geta slíkar aðstæður ekki verið grundvöllur verndar. Réttarframkvæmd um heim allan endurspeglar þetta. Hér er, eins og áður segir, um að ræða neyðarkerfi fyrir fólk í hættu en ekki úrræði til búferlaflutninga vegna bágra kjara.

Frá Tirana, höfuðborg Albaníu.
Frá Tirana, höfuðborg Albaníu. Mynd/Wikipedia

85 fengu hæli af mannúðarástæðum

Ef litið er til afgreiðslu hælisumsókna Albana í ríkjum ESB á þriðja ársfjórðungi kemur fram að af 17.330 umsóknum fengu 17.125 Albanar synjun. Alls fengu 205 jákvæða afgreiðslu. Þar af fengu 45 stöðu flóttamanns, 75 fengu vernd af öðrum ástæðum (t.d. ef lífi þeirra hefur verið ógnað í heimalandinu – þá yfirleitt vegna hættu á blóðhefnd) og svo fengu 85 hæli af mannúðarástæðum.

Sjá nánar á vef Eurostat

Ef farið er yfir upplýsingar á vef Hagstofu Evrópu sést að á fyrsta ársfjórðungi voru íbúar Kósóvó stærsti hluti hælisumsækjanda í ríkjum ESB. Á öðrum ársfjórðungi taka Sýrlendingar við efsta sætinu og Albanir færast í þriðja sætið með 8% umsókna en á fyrsta ársfjórðungi var hlutfall þeirra 4% þeirra sem voru að sækja um hæli í ríkjum ESB. Á þriðja ársfjórðungi eru Albanir komnir í annað sæti yfir hælisleitendur eða 14%.

Til þess að eiga rétt á alþjóðlegri vernd, því að …
Til þess að eiga rétt á alþjóðlegri vernd, því að teljast flóttafólk og eiga rétt á hæli að lögum og samkvæmt alþjóðasáttmálum þarf fólk að vera í einhvers konar hættu og eiga ekki möguleika á viðunandi vernd og úrræðum í heimalandi sínu. AFP

Á undanförnum árum hafa hælisleitendur frá Albaníu verið afar áberandi á Íslandi en fyrirliggjandi upplýsingar og mannréttindaskýrslur eru samhljóða um að Albanía sé friðsælt lýðræðisríki þar sem hvorki er stríðsástand né ógnarstjórn, segir á vef Útlendingastofnunar.

Ekki í hættu en vantar vinnu

„Í mörgum málum ber fólk því ekki við að það sé í neinni hættu og sækir um hæli sem flóttafólk vegna þess að það vantar atvinnu eða býr við slök lífskjör. Telji fólk sig í hættu eru lögregla og yfirvöld í Albaníu í langflestum tilfellum fullfær um að veita viðeigandi aðstoð.
 
Í ljósi þessa og atvika í hverju máli er stór hluti umsókna albanskra ríkisborgara sem tekin hefur verið afstaða til talinn bersýnilega tilhæfulaus. Sömu sögu er að segja annars staðar í Evrópu þar sem umsóknum albanskra ríkisborgara um alþjóðlega vernd er synjað í vel yfir 90% tilfella. Ýmist þarf fólk ekki á vernd að halda eða yfirvöld í Albaníu eru fullfær um að veita þá aðstoð sem nauðsynleg er vegna aðstæðna þeirra.

Séu þær aðstæður uppi að albanskur ríkisborgari sé í hættu í heimalandi sínu og eigi ekki möguleika á vernd í þar er honum eða henni veitt alþjóðleg vernd hér á landi eins og lög og alþjóðasáttmálar mæla fyrir um. Rétt er að taka fram að hvert mál er rannsakað sérstaklega, bæði varðandi persónulegar aðstæður viðkomandi heima fyrir og almennar aðstæður þar.

Eins og áður segir geta efnahagslegar aðstæður fólks ekki verið grundvöllur verndar á borð við stöðu flóttamanns. Þá staðfesta skýrslur og upplýsingar um Albaníu að þar sé fyrir hendi skilvirkt atvinnuleysis- og bótakerfi auk almennra sjúkratrygginga,“ segir á vef Útlendingastofnunar.

Flóttamannabúðir Palestínumanna,Yarmuk, í Damaskus.
Flóttamannabúðir Palestínumanna,Yarmuk, í Damaskus.

Albanir hafa sömu möguleika á að sækja um og fá dvalarleyfi hér á landi og aðrar ríkisborgarar ríkja utan evrópska efnahagssvæðisins. Um slíkar umsóknir gilda, hér á landi eins og víðast hvar annars staðar, lög og reglur sem verður að fylgja og hvað þetta varðar verður Útlendingastofnun að gæta jafnræðis. Ekki er hægt að komast í kringum þessar reglur með því að sækja um hæli sem flóttamaður.

Undanfarin ár hafa yfir 90% allra dvalarleyfisumsókna verið samþykktar hjá Útlendingastofnun. Á fjórða þúsund umsóknir um dvalarleyfi berast stofnuninni á hverju ári en dvalarleyfi sem grundvallast á atvinnu hér á landi eru háð því að Vinnumálastofnun veiti atvinnuleyfi.

Flóttamannabúðir í Tansaníu.
Flóttamannabúðir í Tansaníu.

Mikil fátækt 

Í umfjöllun Spigel um stöðu mála í Albaníu fyrr á árinu kemur fram að mikið atvinnuleysi, allt að 30%, hafi rekið fjölmarga Albana af stað í atvinnuleit í öðrum löndum.

Samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðabankanum skipar Albanía 9 sæti lista yfir þá sem hafa yfirgefið heimalandið, það er miðað við hlutfall af höfðatölu. Á fyrstu sjö mánuðum ársins sóttu tæplega 30 þúsund Albanar um hæli í Þýskalandi. Á síðasta ári voru umsóknirnar ekki nema átta þúsund talsins allt árið.

Í Spigel kemur fram að þessi mikla bylgja flóttafólks frá Albaníu til Þýskalands byggi meðal annars á orðrómi frá Kósóvó  um að það vanti vinnuafl í Þýskalandi og það sé auðvelt að komast þangað.

Albanir eru ekki lengur krafðir um vegabréfsáritun í ríkjum innan Schengen landamærasamstarfsins og geta þeir nú dvalið í þrjá mánuði á ári sem ferðamenn í ríkjum á Schengen svæðinu. Við komuna til Þýskalands sækja margir um hæli og fá greiddar 143 evrur á mánuði í framfærslu á meðan þeir bíða eftir starfi eða afgreiðslu sinna mála, samkvæmt Spigel.

Rojova flóttamannabúðirnar í Suruc
Rojova flóttamannabúðirnar í Suruc AFP

Albanía var áður kommúnistaríki og eftir að kommúnistar misstu völdin var landið á barmi borgarastyrjaldar. En nú er þar þingbundið lýðræði. Albanía hefur sótt um aðild að ESB og er umsóknin í aðildarferli. En Albanía er einnig land þar sem mansal og skipulögð glæpastarfsemi er daglegt brauð. Fjölmörg sprengjutilræði hafa verið gerð þar í tengslum við skipulagða glæpastarfsemi og illdeilna meðal stjórnmálamanna og fjölskyldna. Albanía er eitt spilltasta land í heimi og margar fjölskyldur eru lokaðar inni á heimilum sínum af ótta við blóðhefnd.

Rúmar tvær evrur á tímann

Albanía er fátækasta land Evrópu, að minnsta kosti meðal þeirra 37 ríkja sem Eurostat heldur gagnagrunn um. Eftir 1990 var samyrkjubúum lokað og iðnaðurinn kominn af fótum fram. Á sama tíma yfirgaf helmingur vísindamanna og háskólamanna landið. Um það bil helmingur þjóðarinnar vinnur við landbúnað og verg landframleiðsla er aðeins einn áttundi af meðaltali ESB. Laun eru afar lág og að meðaltali er tímakaup í Albaníu rúmar tvær evrur, sem svarar til 285 króna.

En enginn er ofsóttur fyrir gagnrýni á stjórnvöld. Það er ekki stríð í landinu og sígaunar, samkynhneigðir og fleiri hópar sem oft eru bitbein ofsókna sæta ekki ofsóknum í Albaníu.

Spiegel ræddi við fjölskyldu í Albaníu þar sem hluti fjölskyldunnar vildi yfirgefa landið og leita nýrra tækifæra. Þau töluðu um brottflutta Albana sem hafi gengið vel í nýja landinu og hafi getað sent pening heim til aldraðra foreldra.

Frá Lesbos en þangað streyma þúsundir flóttamanna daglega
Frá Lesbos en þangað streyma þúsundir flóttamanna daglega AFP

Edi Rama, forsætisráðherra Albaníu, segist skilja að lífskjör í Þýskalandi séu freistandi fyrir ungt fólk í Albaníu. Hann vill að Albanía gangi í ESB en áratugum saman byggði efnahagur landsins á sprengingu í mannvirkjagerð og peningayfirfærslum frá þeim sem fluttu á brott. Stjórnvöld hafa reynt að leggja áherslu á annars konar viðskipti, svo sem orkuiðnað, ferðamennsku, fjarskiptamarkaðinn og fataframleiðslu. En breytingin tekur tíma segir Rama og í raun hafi framþróunin staðið í stað.

Beðið eftir læknishjálp í bænum al-Nashabiyah í Sýrlandi.
Beðið eftir læknishjálp í bænum al-Nashabiyah í Sýrlandi. AFP

Rama telur að á meðan fólksstraumurinn er jafn mikill úr landi og margir Albanar sækja um hæli í ríkjum Evrópu þá eigi Albanía ekki möguleika á að fá aðild að ESB. Rama á sér draum sem hann hefur rætt við Angelu Merkel, kanslara Þýskalands. Að það verði komið á samstarfi milli ríkjanna tveggja um nám í Albaníu þar sem Albanir fengju kennslu í atvinnugreinum sem Þjóðverjar vilja sjálfir ekki starfa við.

Líkt og fram hefur komið voru 27 einstaklingar fluttir af landi brott 10. desember  í samstarfi Útlendingastofnunar, ríkislögreglustjóra og Frontex Landamærastofnun Evrópu. Þar af voru fimm fjölskyldur, þrjár frá Makedóníu og tvær frá Albaníu.

Báðar albönsku fjölskyldurnar höfðu ákveðið að una ákvörðun Útlendingastofnunar um synjun á hæli og höfðu dregið til baka kærur sínar til kærunefndar útlendingamála. Fjölskyldurnar óskuðu í kjölfarið eftir flutningi til heimalands, segir á vef Útlendingastofnunar en mikil reiði ríkir í garð yfirvalda vegna brottvísunar albönsku fjölskyldnanna . Einkum vegna þess að í báðum fjölskyldum eru börn sem glíma við mjög alvarlega sjúkdóma.

10% fá ríkisborgararétt með lögum frá Alþingi

Sótt hefur verið um íslenskan ríkisborgararétt fyrir fjölskyldurnar tvær og mun allsherjarnefnd fjalla um um­sókn­ir þeirra sem og annarra sem hafa sótt um að fá íslenskan rík­is­borg­ara­rétt í gegnum Alþingi . Alls hafa 63 óskað eftir því að fara þessa leið til þess að fá íslenskt ríkisfang.

Frum­varp um veit­ingu rík­is­borg­ara­rétt­ar hef­ur ekki verið lagt fram enn en Unn­ur Brá Kon­ráðsdótt­ir, formaður nefnd­ar­inn­ar, seg­ir að það komi fram áður en þingi verður slitið fyrir jól.

Rúm­lega 600 út­lend­ing­um var í fyrra veitt­ur ís­lensk­ur rík­is­borg­ara­rétt­ur, en af þeim fengu um 60 rík­is­fang sitt með lög­um frá Alþingi.

Björg Thor­ar­en­sen, pró­fess­or í stjórn­skip­un­ar­rétti við laga­deild HÍ, seg­ir vald Alþing­is til að veita slík­an rétt sér­stakt fyr­ir­komu­lag.

Útlend­ing­um er í lang­flest­um til­vik­um veitt­ur ís­lensk­ur rík­is­borg­ara­rétt­ur með stjórn­valdsákvörðun sam­kvæmt­ lög­um um ís­lensk­an rík­is­borg­ara­rétt. Er það þá Útlend­inga­stofn­un sem sér um af­greiðslu um­sókna um rík­is­borg­ara­rétt og veit­ingu hans.

Flóttafólk frá Erítreu í Súdan
Flóttafólk frá Erítreu í Súdan AFP

„Þeir sem fara þessa leið þurfa að sýna fram á að þeir upp­fylli ákveðin skil­yrði sam­kvæmt lög­un­um. Al­menna regl­an er að um­sækj­andi skuli hafa átt lög­heim­ili hér í sjö ár, en sé hann rík­is­borg­ari í ein­hverju öðru nor­rænu ríki þarf hann þó ein­ung­is að hafa átt lög­heim­ili hér í fjög­ur ár,“ seg­ir Björg í viðtali við Morgunblaðið, og bend­ir á að sérregl­ur gilda t.a.m. um bú­setu­tíma flótta­manna og þeirra sem fengið hafa dval­ar­leyfi af mannúðarástæðum. Þurfa þeir ein­stak­ling­ar að hafa hér átt lög­heim­ili í fimm ár.

Önnur skil­yrði sem þarf að upp­fylla eru t.d. að um­sækj­andi hafi með full­nægj­andi hætti sannað hver hann sé, að hann sé starf­hæf­ur og vel kynnt­ur, að hann geti fram­fleytt sér hér­lend­is og hafi ekki þegið fram­færslu­styrk frá sveit­ar­fé­lagi síðastliðin þrjú ár. Um­sækj­andi þarf einnig að sýna fram á að hann hafi ekki, hér­lend­is eða er­lend­is, sætt sekt­um eða fang­els­is­refs­ingu og að ár­ang­urs­laust fjár­nám hafi ekki verið gert hjá hon­um síðastliðin þrjú ár.

Til er önn­ur leið við þegn­leiðingu og er það þegar Alþingi ákveður að veita rík­is­borg­ara­rétt með sér­stök­um lög­um. „Þetta er vissu­lega svo­lítið sér­stakt fyr­ir­komu­lag því þarna er Alþingi að af­greiða per­sónu­leg­ar um­sókn­ir ein­stak­linga sem er ólíkt öðrum verk­efn­um þings­ins. En þetta er hins veg­ar upp­runa­lega aðferðin við veit­ingu rík­is­borg­ara­rétt­ar,“ seg­ir Björg og bend­ir á að með stjórn­ar­skrár­breyt­ingu árið 1995 hafi stjórn­völd­um fyrst verið falið að veita rík­is­borg­ara­rétt á grund­velli lögákveðinna skil­yrða. Alþingi hélt hins veg­ar áfram sínu valdi sam­hliða.

Frá Suður-Súdan.
Frá Suður-Súdan. AFP

„Alþingi hef­ur nú ákveðið svig­rúm til að veita sum­um ein­stak­ling­um for­rétt­indi um­fram aðra,“ seg­ir Björg en þannig get­ur þingið veitt þeim ein­stak­ling­um sem ekki upp­fylla al­menn lög­bund­in skil­yrði um rík­is­borg­ara­rétt rík­is­fang á Íslandi. Dæmi um slíkt eru Bobby Fischer skák­meist­ari og ómálga barn sem kom frá Indlandi.

Fáar leiðir færar inn í landið

Upplýsingar um heilbrigðiskerfið í Albaníu

Upplýsingar um brottflutning fólks

Flóttamannahugtakið og aðstæður í Albaníu

Suður-Súdan
Suður-Súdan AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert