Ásatrúarfélagið fær ekki frið fyrir ferðamönnum

Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði bregst við ágangi.
Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði bregst við ágangi. mbl.is/Arnaldur Halldórsson

Ásatrúarfélagið hefur orðið fyrir miklu áreiti frá erlendum ferðamönnum og fjölmiðlum utan úr heimi sem og fræðimönnum í ár.

Hefur félagið orðið að bregðast við með því að banna utanaðkomandi fólki að trufla samkomur með myndatökum og með því að svara rafrænum pósti með sjálfvirkum svörum.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði  að mikið ónæði hafi verið í ár. Erlendir blaðamenn hafi ekki verið flugur á vegg heldur sem flugur ofan í matnum á samkomum ásatrúarmanna. Þennan ágang megi fyrst og fremst rekja til byggingar hofs í Öskjuhlíð.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert