Það sem af er árinu hafa 16 látist í umferðinni hér á landi, en sextánda banaslysið varð í Öræfasveit á öðrum degi jóla. Fara þarf aftur til ársins 2009 til að finna fleiri banaslys, en þá létust 17.
Miðað við síðasta ár hafa fjórfalt fleiri látist í umferðinni í ár en aðeins fjögur banaslys urðu þá. Höfðu jafnfá banaslys þá ekki orðið í umferðinni allt frá árinu 1939. Af þeim sem látist hafa á þessu ári hafa verið nokkrir erlendir ferðamenn. Spurður hvað veldur fjölgun slysa milli ára segir Ágúst Mogensen hjá Rannsóknarnefnd samgönguslysa að mikil fjölgun ferðamanna sé hluti af skýringunni. „Á þessu ári hafa sex erlendir ökumenn valdið banaslysi, þar af fimm ferðamenn, en enginn í fyrra. Að auki höfum við fengið töluvert af tilkynningum um alvarleg umferðarslys þar sem erlendir ferðamenn eiga í hlut. Þetta er í samræmi við aukinn fjölda ferðamanna hér á landi,“ segir Ágúst.
Nokkuð var um slys í umferðinni um jólin. Auk banaslyssins í Öræfasveit, þar sem tveir bílar með erlendum ferðamönnum rákust saman, urðu tvö slys í Fáskrúðsfirði. Í öðru þeirra voru erlendir ferðamenn á ferð og þykir mikil mildi að enginn stórslasaðist.