Hendum ekki verðmætum!

Samband íslenskra kristniboðsfélaga í samstarfi við Póstinn, hefur nú hafið söfnun á notuðum frímerkjum. Heiti verkefnis er: Hendum ekki verðmætum!

Í fréttatilkynningu kemur fram að söfnunin stendur til 31. janúar 2016 og er tekið við frímerkjum og umslögum á pósthúsum um land allt. Æskilegt er að fá frímerkin á umslögum en einnig er tekið við stökum frímerkjum. Allur ágóði verður notaður í þróunarstarf á sviði menntunar barna, unglinga og fullorðinna í Eþíópíu og Keníu.

Frímerkjum er einnig veitt móttaka allan ársins hring í Basarnum, nytjamarkaði Kristniboðssambandsins í Austurveri, Háaleitisbraut 68 og í Litla húsinu, Glerárgötu 1, Akureyri.

Á árinu 2015 skilaði frímerkjasöfnun Kristniboðssambandsins um 3,6 milljónum króna. Þeir fjármunir voru m.a. notaði til að byggja framhaldsskóla í Pókot í Keníu, styðja fátæk börn í Addis Abeba, höfuðborg Eþíópíu og kenna fullorðnum að lesa í Suður-Eþíópíu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert