47,8% ánægð með störf forsetans

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í nýrri könnun MMR sem lauk 18. desember kom í ljós að milli mælinga hefur fækkað í hópi þeirra sem eru ánægð með störf forseta.

Í könnuninni sögðust 47,8% þeirra sem tóku afstöðu vera ánægð með störf forsetans, miðað við 54,8% sem sögðust vera ánægð með forsetans í könnun sem lauk þann 7. desember. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 25,2% vera óánægð en 26,9% sögðust hvorki vera ánægð né óánægð með störf forsetans.

Spurt var: „Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ert þú með störf Ólafs Ragnars Grímssonar sem forseta Íslands?“ Svarmöguleikar voru: Mjög ánægð(ur), ánægð(ur), hvorki ánægð(ur) né óánægð(ur), óánægð(ur), mjög óánægð(ur) og veit ekki/vil ekki svara.
Samtals tóku 97,1% afstöðu til spurningarinnar.

Ánægja með störf Ólafs Ragnars sem forseta er mismunandi eftir menntunarstigi og ekki síður stuðningi við stjórnmálaflokka, en 81% þeirra sem sögðust myndu kjósa Framsókn ef kosið væri í dag voru ánægð eða mjög ánægð með störf forseta borið saman við 18% þeirra sem sögðust myndu kjósa Samfylkinguna.

Af vef MMR.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert