Tveggja manna enn leitað

Frá Öskjuhlíð. Leit fór þar fram fyrr í dag en …
Frá Öskjuhlíð. Leit fór þar fram fyrr í dag en henni virðist nú lokið í bili. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Tveir hafa nú verið handteknir í tengslum við rannsókn á vopnuðu bankaráni í útibúi Landsbankans við Borgartún í dag. Þetta staðfestir Kristján Ólafur Guðnason aðstoðaryfirlögregluþjónn í samtali við mbl.is. Að sögn Kristjáns stendur enn leit yfir af tveimur mönnum til viðbótar.

Kristján gat ekki staðfest að mennirnir tveir sem handteknir hafa verið séu mennirnir sem rændu bankann í dag.

Víðtæk­ar leit­araðgerðir lög­reglu og sér­sveit­ar rík­is­lög­reglu­stjóra hóf­ust á fjórða tím­an­um í dag. Þyrla Land­helg­is­gæsl­unn­ar tók einnig þátt í leit­inni en svo virðist sem leitinni hafi verið lokið á sjöunda tímanum. Að sögn blaðamanns mbl.is sem stadd­ur var í Öskju­hlíð var þá enga lög­reglu­menn eða lögreglubíla að sjá. 

Lögreglan óskar upplýsinga um mennina á myndunum.
Lögreglan óskar upplýsinga um mennina á myndunum.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert