Tveir handteknir í tengslum við rán

Þyrla Landhelgisgæslunnar yfir Öskjuhlíð fyrr í dag.
Þyrla Landhelgisgæslunnar yfir Öskjuhlíð fyrr í dag. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Samkvæmt heimildum mbl.is er búið að handtaka tvo í tengslum við rannsókn á bankaráni í Borgartúni í dag. Að sögn blaðamanns mbl.is sem staddur er í Öskjuhlíð virðist vera sem leit lögreglunnar og sérsveitarinnar að mönnunum sé lokið í Öskjuhlíð. Enga lögreglumenn eða bíla er að sjá. 

Kristján Ólaf­ur Guðna­son, aðstoðaryf­ir­lög­regluþjónn, varðist allra frétta og sagðist ekki geta staðfest hand­tök­urnar í sam­tali við mbl.is rétt í þessu.

Víðtæk­ar leit­araðgerðir lög­reglu og sér­sveit­ar rík­is­lög­reglu­stjóra hóf­ust á fjórða tím­an­um í dag. Þyrla Land­helg­is­gæsl­unn­ar tók einnig þátt í leit­inni.

Frá Öskjuhlíð
Frá Öskjuhlíð mbl.is/Júlíus Sigurjónsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert