Bretarnir hafa fengið líflátshótanir

Skjáskot

Bretarnir, sem bjarga þurfti þrisvar hér á landi á ferðalagi þeirra yfir hállendið, hafa fengið margar líflátshótanir í kjölfarið. Þetta fullyrða þeir á Twitter-síðu sinni og segjast þeir taka þeim alvarlega og ætla að fara málið til yfirvalda.

Þeir segja sjálfsagt að umræða fari fram um málið og þeir hafi skilning á áhyggjum fólks og vonbrigðum með þá. En annað sé hins vegar þegar lífi þeirra og limum sé hótað. Þeir hafa komið þakkkæti sínu á framfæri við björgunarsveitarmenn á Twitter-síðunni og ennfremur lýst því yfir að þeir ætli að styrkja björgunarsveitirnar með fjárframlagi.

Frétt mbl.is: Myndband vekur úlfúð Íslendinga

„Við höfum fengið margar líflátshótanir. Hafið í huga að við tökum slíku alvarlega og munum fara með þær til viðeigandi yfirvalda,“ segir á Twitter-síðunni og ennfremur: „Það er svigrúm fyrir umræður og við höfum skilning á áhyggjum margra ykkar og vonbrigði en þegar ekki þegar lífi og limum okkar er ógnað.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert