Eldur í andyri fjölbýlishúss

Eldur kom upp í fjölbýlishúsi í Breiðholti um klukkan fjögur í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu kom eldurinn upp í andyri og læsti sig í klæðningu á veggjum hússins. 

Eldurinn var þó minniháttar og gekk greiðlega að slökkva hann. Eldsupptök eru ókunn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert