Keyrði af stað með barnavagn í dyrunum

Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. mbl.is/Ómar Óskarsson

Ungbarn var hætt komið í dag þegar barnavagn festist hálfur inni í strætisvagni sem var ekið af stað.

Móðir drengsins, Klara Arnaldsdóttir, segir frá atvikinu á Facebook síðu sinni. Segir hún það hafa reynt ansi harkalega á móðurhjartað þegar sonur hennar, Þröstur Heiðar, „gerði sér lítið fyrir og fór „einn“ í strætó.“

„Við vorum sumsé á leið upp í strætó á Lækjartorgi, barnavagninn var kominn með tvö dekk upp í vagninn þegar hurðirnar allt í einu lokast, klemma vagninn í dyrunum og bílstjórinn keyrir af stað,“ skrifar Klara. „Þeir farþegar sem sáu þetta voru sem betur fer fljótir að öskra á vagnstjórann að stoppa og drengurinn fór því ekki langt, en þó nógu langt til að fylla mig einni þeirri mestu skelfingu sem ég hef nokkurn tíma fundið fyrir.“

Bílstjórinn baðst ekki afsökunar

Ástæðuna fyrir því að Klara skrifar um reynslu sína segir hún vera til að koma þökkum á framfæri til „yndislegrar menntaskólastúlku sem sagðist heita Birna, sem kom og settist hjá grenjandi, snöktandi horfjallinu mér, spjallaði við mig alla leiðina og fór út einni stoppistöð síðar en hún ætlaði til þess eins að getað hjálpað mér út með vagninn,“ skrifar Klara.

Hún segir umrædda Birnu greinilega með hjarta úr gulli og að sér hafi þótt verulega vænt um hjálpina. Klara segir bílstjórann ekki hafa yrt á hana, hvað þá beðist afsökunar, þegar hún sýndi honum farmiðann sinn skjálfandi.

„(...)hann má hinsvegar náðarsamlegast éta það sem úti frýs.“ 

Uppfært 22:40
Í samtali við mbl.is segir Klara í ljós hafa komið að hún þekkti systkini umræddrar Birnu og tókst henni að koma þökkum á framfæri í gegnum þau. Hyggst hún hafa samband við Strætó vegna málsins á morgun, þegar hún hefur náð að róa taugarnar enda er henni enn brugðið vegna atviksins. 

Í dag reyndi ansi harkalega á móðurhjartað þegar Þröstur Heiðar gerði sér lítið fyrir og fór "einn" í strætó. Við vorum...

Posted by Klara Arnalds on Monday, January 4, 2016
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert