BUGL fær aukna fjármuni

Kristján Þór Júlíusson.
Kristján Þór Júlíusson. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Tekin hefur verið ákvörðun um að veita 45 milljóna króna styrk til að efla þjónustu göngudeildar barna- og unglingageðdeildar Landspítalans (BUGL) við börn sem þurfa þjónustu vegna alvarlegra geðrænna einkenna, s.s. þunglyndis, sjálfsvígshugsana og sjáfskaðandi hegðunar. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra tilkynnti Landspítala um fjárveitinguna í lok nýliðins árs samkvæmt fréttatilkynningu frá velferðarráðuneytinu.

„Styrkurinn er veittur á grundvelli tillögu til þingsályktunar um stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til fjögurra ára sem ráðherra lagði fyrir Alþingi á 145. löggjafarþingi. Þar kemur m.a. fram að um 120 börn bíði eftir þjónustu BUGL og að meðalbiðtími eftir þjónustu sé um níu mánuðir. Mikilvægt sé að stytta biðina og sinna betur ungum börnum og fjölskyldum þeirra. Vísað er til þess að fjöldi rannsókna sýni að snemmtæk inngrip skili mestum árangri og að meðferð taki skemmri tíma en ella ef fljótt er brugðist við,“ segir ennfremur.

Samkvæmt þingsályktunartillögunni sé miðað við að efla þjónustu á göngudeild BUGL með 29 milljóna króna auknu framlagi á ári í þrjú ár; 2017 – 2019. Haft er eftir Kristjáni Þór að ánægjulegt sé að geta aukið fjármuni til að ráðast í verkefnið fyrr en áætlað hafi verið. Alvarlegt sé þegar börn og foreldrar þeirra þurfi að bíða mánuðum saman eftir svo brýnni þjónustu. Slík bið sé erfið barninu og fjölskyldunni og geti reynst afdrifarík. Hann vonist til að með þessu aukna framlagi verði unnt að vinda ofan af þeim vanda sem skapist hafi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert