Bílvelta í Skagafirðinum

mbl.is/Þórður

Fólksbifreið lenti utan vegar í Norðurárdal vestan megin við Öxnadalsheiðina samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Sauðárkróki. Slysið varð um hádegisbilið í dag.

Fjórir voru í bifreiðinni, allt erlendir ferðamenn. Var einn þeirra fluttur á sjúkrahús með minniháttar meiðsl. Bifreiðin er hins vegar illa farin og ólíklegt að hún verði tekin í gagnið á nýjan leik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert