Dæmdur fyrir að stela bílnúmeri

mbl.is/ÞÖK

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag karlmann í fangelsi í 30 daga fyrir þjófnaðar- og skjalabrot með því að hafa í maí á síðasta ári stolið skráningarnúmeri af bifreið sem stóð á bifreiðastæði við Kaplahraun 1 í Hafnarfirði og sett á aðra.

Fullnustu refsingarinnar er frestað og fellur niður að liðnum tveimur árum haldi maðurinn almennt skilorð. Maðurinn var dæmdur að honum fjarstöddum en hann mætti ekki við meðferð málsins fyrir dómi og boðaði ekki forföll. Málinu hafði áður verið frestað fyrir dómi en þá boðaði maðurinn forföll.

Fram kemur í dómi Héraðsdóms maðurinn hafi ekki áður hlotið dóm.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert