Miðar á Bieber enn í boði

Justin Bieber.
Justin Bieber. AFP

Samkvæmt vefsíðunni Tix.is er enn hægt að kaupa miða á aukatónleika kanadíska tónlistarmannsins Justins Bieber í september. Uppselt er í stúku eins og mbl.is sagði frá fyrr í dag en enn er hægt samkvæmt síðunni að kaupa miða í stæði en þeir kosta 15.990 krónur.

Miðasalan hófst í morgun klukkan 10:00 og um hádegisbilið voru stúkumiðarnir uppseldir. Í síðasta mánuði fór fram miðasala á tónleika Biebers 9. september og seldist upp á um hálftíma. Í kjölfarið náðist að semja við söngvarann um að halda aukatónleika daginn áður.

Eins og á tónleikana 9. september voru 19.000 miðar í boði á aukatónleikana. Haft var eftir Ísleifi Þórhallssyni, tónleikahaldari hjá Senu, að ekki væri spurning hvort miðarnir á aukatónleikana seldust upp heldur hvenær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert