Tippið gjöfult í Grindavík

Frá Grindavík.
Frá Grindavík. mbl.is/Árni Sæberg

Fjórir spilarar voru með 13 rétta í Getraunum í dag á Enska getraunaseðlinum samkvæmt upplýsingum frá Íslenskri getspá. Einn þeirra var hópur frá Grindavík sem fékk 13 rétta.

„Síðustu tvær vikur fékk húskerfið í Grindavík 13 rétta þannig að Grindvíkingar hafa fengið 13 rétta á Enska getraunaseðlinum þrjár helgar í röð og hefur tippið því verið gjöfult í Grindavík undanfarnar vikur. Einn vinningshafi styður Golfklúbb Ólafsfjarðar og tveir vinningshafar keyptu sína getraunaseðla á 1X2.is. Vinningsupphæðin fyrir 13 rétta að þessu sinni eru rúmar 600 þúsund krónur,“ segir í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert