214 hjúkrunarrými á fimm árum

Samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir hefur fallist á framkvæmdaáætlun heilbrigðisráðherra sem felur í sér byggingu þriggja nýrra hjúkrunarheimila, alls 214 ný hjúkrunarrými, á næstu fimm árum. Áætlaður heildarkostnaður framkvæmdanna nemur 5,5 milljörðum króna.

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra, segist í fréttatilkynningu afar ánægður með að geta loksins kynnt framkvæmdaáætlun um byggingu hjúkrunarheimila með umtalsverðri fjölgun rýma þar sem þörfin er brýnust: „Þetta er fyrsta skrefið í áætlunargerð sem ég mun að sjálfsögðu vinna með áfram í samræmi við skynsamlega forgangsröðun og þörf fyrir frekari uppbyggingu á landsvísu.“

204 ný hjúkrunarrými á höfuðborgarsvæðinu

Samkvæmt áætluninni verða byggð tvö ný hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu, annað í Reykjavík og hitt í Kópavogi. Gengið verður til viðræðna við forsvarsmenn bæjarfélaganna tveggja um fyrirhugaða uppbygginu á næstunni. Á hjúkrunarheimilinu sem áformað er að byggja í Reykjavík verða 100 hjúkrunarrými en 64 á heimilinu í Kópavogi.

Til viðbótar þessum rýmum má geta þess að framkvæmdir standa yfir við byggingu hjúkrunarheimilis á Seltjarnarnesi með 40 rýmum. Stefnt er að því að taka það í notkun á næsta ári.

Áætlun um uppbyggingu hjúkrunarrýma miðast við að reist verði hjúkrunarheimili með 50 rýmum á Árborgarsvæðinu. Að hluta til leysa þessi rými af hólmi eldri rými á svæðinu þar sem markmiðið er að bæta aðbúnað aldraðra en 15 rýmanna verða hrein viðbót við fjölda hjúkrunarrýma á svæðinu. 

Um hefðbundna fjármögnun að ræða

Hjúkrunarheimili sem byggð hafa verið á síðustu árum hafa flest verið fjármögnuð með svokallaðri leiguleið þar sem sveitarfélögin standa að og fjármagna framkvæmdir en framlag ríkisins felst í leigugreiðslum sem telst ígildi stofnkostnaðar. Áætlunin sem hér er kynnt byggist aftur á móti á hefðbundinni fjármögnunarleið þar sem 40% stofnkostnaðar rennur úr Framkvæmdasjóði aldraðra, ríkissjóður greiðir að hámarki 45% og sveitarfélögin að lágmarki 15%. Áætlaður heildarkostnaður við uppbyggingu hjúkrunarheimilanna þriggja nemur 5,5 milljörðum króna, segir í tilkynningu.

Undirbúa nýtt hjúkrunarheimili í Hafnarfirði, Hvolsvelli og Hellu

Í Hafnarfirði hefur verið tekin ákvörðun um að byggja nýtt hjúkrunarheimili á lóð Sólvangs samkvæmt svokallaðri leiguleið. Þau rými munu bæta mjög aðbúnað þeirra sem búa á gamla Sólvangsheimilinu. Á Suðurlandi standa yfir framkvæmdir vegna byggingar nýrrar hjúkrunarálmu við hjúkrunarheimilið Kirkjuhvol á Hvolsvelli og Lund á Hellu. Þær nýkvæmdir munu einnig bæta mjög aðbúnað þeirra sem búa á þessum heimilum.

„Framkvæmdum við byggingu þriggja nýrra hjúkrunarheimila lauk á liðnu ári, með samals 70 hjúkrunarrýmum, þ.e. á Egilsstöðum (30), Bolungarvík (10) og Ísafirði (30). Þessi heimili hafa öll verið tekin í notkun. Þegar saman eru talin þessi rými og ný rými sem þegar liggur fyrir að verði byggð, líkt og rakið hefur verið hér að framan, liggur fyrir að með þessum nýframkvæmdum rísa heimili víðsvegar á landinu með samtals 404 hjúkrunarrýmum,“ segir í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu.

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra mbl.is/Rósa Braga
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert