Gagnlegir fundir að baki í Noregi

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra mbl.is/Eggert

Opinberri tveggja daga heimsókn Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra til Noregs, í boði Børge Brende, utanríkisráðherra Noregs, lauk í dag. Á fundum sínum ræddu ráðherrarnir sameiginleg hagsmunamál Íslands og Noregs, þ.m.t. stöðu mála í Úkraínu og fjölþjóðlegar þvingunaraðgerðir gagnvart Rússlandi.

Kemur þetta fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Einnig voru til umræðu málefni norðurslóða og önnur svæðisbundin málefni og greindi Gunnar Bragi meðal annars frá fyrirhugaðri formennsku Íslands í Eystrasaltsráðinu síðar á þessu ári.

Málefni flóttafólks og hælisleitenda voru sömuleiðis á dagskrá, en fyrsti hópur flóttafólks frá Sýrlandi er væntanlegur hingað til lands í næstu viku. Staða mála við botn Miðjarðarhafs var einnig til umfjöllunar, sem og loftslagsmál. Gunnar Bragi greindi norska starfsbróður sínum einnig frá breytingum á skipulagi þróunarsamvinnu á Íslandi, en Norðmenn réðust í viðlíka breytingar á sínum tíma.

Þá ræddu ráðherrarnir fiskveiðimál og voru sammála um að stuðla að bættu samstarfi á norðanverðu Atlantshafi.

Á meðan á heimsókninni stóð átti utanríkisráðherra ennfremur fundi með varnarmálaráðherra, iðnaðarráðherra og Evrópumálaráðherra Noregs. Á fundi sínum með varnarmálaráðherranum, Ine Eriksen Søreide, voru málefni Atlantshafsbandalagsins (NATO) til umræðu og tvíhliða samstarf ríkjanna á sviði öryggis- og varnarmála, sem er víðfeðmt. Þannig munu Norðmenn til að mynda sinna loftrýmisgæslu hér á landi með vorinu. Samskiptin við Rússland og öryggismál á Norður-Atlantshafi voru einnig til umræðu á fundinum.

Á fundi utanríkisráðherra með Evrópumálaráðherra Noregs, Elisabeth Aspaker, voru málefni EES til umfjöllunar. Gunnar Bragi greindi meðal annars frá nýútkominni skýrslu stýrihóps stjórnvalda um framkvæmd EES-samningsins. Einnig ræddu ráðherrarnir framlög í uppbyggingarsjóð EES, sem nýlega hefur náðst samkomulag um. Aspaker er einnig samstarfsráðherra Norðurlandanna og ræddu ráðherrarnir þá stöðu sem uppi er á Norðurlöndunum í málefnum flóttafólks og hælisleitenda.

Að endingu fundaði utanríkisráðherra með iðnaðarráðherra Noregs, Monicu Mæland. Á fundinum voru málefni EFTA fyrirferðamikil, auk þess sem fríverslunarviðræður ESB og Bandaríkjanna og nýtilkominn fríverslunarsamningur tólf Kyrrahafsríkja bar á góma.

Utanríkisráðherra fundaði einnig með utanríkis- og varnarmálanefnd norska þingsins og hitti fyrir sendiherra gagnvart Íslandi sem aðsetur hafa í Noregi. Ennfremur fundaði ráðherra með fulltrúum úr norsk-íslenska viðskiptaráðinu og heimsótti Nýsköpunarstofnun Noregs.

„Ég átti mjög ánægjulega og gagnlega fundi hér í Noregi enda liggur fyrir að þessar tvær nánu vinaþjóðir deila gildum og hagsmunum í flestu. Samskiptin við Rússland og þvingunaraðgerðir voru ofarlega á baugi í samtölum mínum við norska kollega, enda Rússland næsti nágranni Noregs og þar, líkt og á Íslandi, miklir hagsmunir í húfi. Það var einnig fróðlegt að heyra sjónarmið Norðmanna um áskoranir við komu flóttafólks. Þótt aðstæður séu um margt ólíkar er mikilvægt fyrir okkur að heyra sjónarmið og læra af reynslu,“ er haft eftir Gunnari Braga í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert