Einn vann 152 milljónir

Eurojackpot.
Eurojackpot.

Úrslit í Eurojackpot í kvöld voru með þeim hætti að einn hlaut annan vinning en átta skiptu með sér þriðja vinning. Fá þeir 6,7 milljónir króna hver í sinn hlut en sá sem hreppti annan vinning fær heilar 152 milljónir.

Sá keypti miða sinn í Þýskalandi, en hinir átta voru keyptir í Þýskalandi, Danmörku, á Spáni og Ítalíu, og fjórir í Finnlandi.

Einn var með allar tölur réttar í réttri röð í Jóker og fær hann 100.000. Hann keypti miðann á lotto.is.

Tölur kvöldsins í Eurojackpot voru 4-23-25-37-39 og stjörnutölurnar 1-9.

Jókertölur kvöldsins voru 4-8-4-9-3.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert