Réðist á vegfaranda

Lögreglu var gert viðvart í dag þegar ökumaður réðist á vegfaranda. Atvikið átti sér stað í kjölfar þess að vegfarandinn gerði athugsemd um það hvernig ökumaðurinn hafði lagt bifreið sinni. Þetta kemur fram í samantekt úr dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Kl. 12.54 fann lögreglan þýfi sem auglýst hafði verið á netinu. Var það haldlagt og skýrsla tekin af vörslumanni. Þá fannst við húsleit í morgun lítil ræktun vímuefna. Húsráðandi var á vettvangi og skýrsla tekin af honum.

Tilkynnt var um þrjú innbrot í bifreiðar á höfuðborgarsvæðinu í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert