Fundu gríðarlegt magn fíkniefna

Söluandvirði fíkniefnanna er talið vera á verðbilinu 12-14 milljónir.
Söluandvirði fíkniefnanna er talið vera á verðbilinu 12-14 milljónir. Ljósmynd/Lögreglan á Suðurnesjum

Lögreglan á Suðurnesjum haldlagði gríðarlega mikið magn fíkniefna í húsleit sem gerð var nýverið í umdæminu. Um var að ræða kannabisefni og var lagt hald á þúsundir söluskammta.

Að auki var umfangsmikil kannabisræktun stöðvuð á sama stað. Grunur leikur á að þarna hafi farið fram framleiðsla, dreifing og sala á fíkniefnum. Einn var handtekinn í þágu rannsóknar málsins og færður til skýrslutöku á lögreglustöð. Söluandvirði fíkniefnanna er talið vera á verðbilinu 12-14 milljónir.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. 

Í annarri húsleit sem gerð var í umdæminu á svipuðum tíma var annar einstaklingur handtekinn eftir að talsvert magn af amfetamíni og kannabisefnum fundust í fórum hans. Þá haldlagði lögregla kylfu, macebrúsa og fjármuni á staðnum. Auk síðarnefnda mannsins var annar aðili handtekinn á staðnum og var hann þar í þeim erindagjörðum að kaupa fíkniefni.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

Frétt mbl.is: Stöðvaði ræktun á tveimur stöðum

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert