Alvarlegt slys í Reykjanesbæ

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Alvarlegt umferðarslys varð rétt fyrir klukkan fimm síðdegis í Reykjanesbæ þegar tveir bílar rákust saman á Njarðarbraut. Tveir voru í öðrum bílnum og einn í hinum og er einn alvarlega slasaður en hann ók öðrum bílnum. 

Ekki fengust nánari upplýsingar um málið að svo stöddu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert