Kona á þrítugsaldri í köfunarslysi

Konan liggur þungt haldin á Landspítalanum við Hringbraut.
Konan liggur þungt haldin á Landspítalanum við Hringbraut. mbl.is/Ómar Óskarsson

Ferðamaðurinn sem var fluttur á sjúkrahús eftir köfunarslys í Silfru er kona á þrítugsaldri. Hún liggur þungt haldin á Landspítalanum við Hringbraut. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.

Lögreglunni barst tilkynning um slysið klukkan 12.42 í dag.

Konan var flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvöll þar sem sjúkrabifreið beið og flutti hana á Landspítalann.

Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi rannsakar atvikið og getur ekki veitt frekari upplýsingar að svo stöddu.

Frétt mbl.is: Alvarlegt köfunarslys í Silfru

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert