Kom að þjófnum

Þessi maður tengist málinu ekki neitt heldur er að ganga …
Þessi maður tengist málinu ekki neitt heldur er að ganga á bílastæði Smáralindar fyrr í vikunni. mbl.is/Golli

Maður á leið í bifreið sína á bifreiðastæði við Smáralind um fjögurleytið í nótt varð var við að það var þjófur inni í bifreið hans þegar hann kom að. 

Þjófurinn lagði á flótta þegar hann varð var við eiganda bifreiðarinnar og komst undan. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hefur þjófurinn ekki fundist en hann hafði brotið rúðu í bifreiðinni og náð að róta inni í henni áður en eigandann bar að.

Um sjö leytið í gærkvöldi stöðvaði lögreglan bifreið í Lágmúla. Tveir karlar og ein kona voru í bílnum og voru þau öll handtekin. Ökumaðurinn var undir áhrifum fíkniefna, líkt og farþegarnir, og þau voru með fíkniefni á sér. Þau gista öll fangageymslu í nótt vegna rannsóknar málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert