Íbúum fjölgar en Íslendingar flytja út

Vegabréfaeftirlit á Keflavíkurflugvelli.
Vegabréfaeftirlit á Keflavíkurflugvelli. Ljósmynd/Heimir Bragi

Íbúum landsins fjölgaði um 1.440 manns á síðasta ársfjórðungi síðasta árs, en þá fæddust 970 börn og 520 manns létust. Þá fluttust 990 einstaklingar til landsins umfram brottflutta og var tæplega helmingur þeirra á þrítugsaldri. Þetta kemur fram í tölum Hagstofu Íslands. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 213.760 manns en 119.000 utan þess í lok ársfjórðungsins.

Þegar horft er til fólksflutninga til og frá landinu sést að brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 160 umfram aðflutta, en aldursdreifing þeirra var nokkuð jöfn. Aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru aftur á móti 1.140 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu og voru 740 þeirra á aldrinum 20 til 39 ára.

Erlendir ríkisborgarar tæplega 27 þúsund

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (150), Noregi (140) og Svíþjóð (60), samtals 350 manns af 490. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 650 til landsins af alls 1.710 erlendum ríkisborgurum. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 80 erlendir ríkisborgarar til landsins.

Í lok fjórða ársfjórðungs bjuggu 26.690 erlendir ríkisborgarar á Íslandi.Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 170 manns á 4. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 420 íslenskir ríkisborgarar af 650 alls. Af þeim 560 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 120 manns.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert