Umferðarslys í Öræfum

Þyrlan er á leið á vettvang.
Þyrlan er á leið á vettvang. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Hringvegurinn er lokaður vegna umferðarslyss rétt austan við Fagurhólsmýri í Öræfum. Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið á vettvang. Þyrlan fór í loftið kl. 15.20. 

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi rákust tveir bílar saman.

Uppfært 15:57: 

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að þjóðvegur 1 við Stigá, skammt austan Hnappavalla, sé lokaður vegna slyssins en í því skullu saman vörubifreið og sendibifreið á einbreiðri brú yfir ána.

Einn maður er slasaður og þurftu björgunarsveitarmenn í Björgunarsveitinni Kára í Öræfum að klippa hann lausan. Maðurinn er með meðvitund en ekki er frekar vitað um áverka hans að sögn lögreglu. Sjúkraflutningamenn frá Höfn eru lentir á vettvangi og þyrla Gæslunnar á leið þangað.

Búast má við að lokun vegarins vari einhverja stund meðan unnið er að rannsókn og ökutæki hafa verið færð af brúnni.

Uppfært 17:19:

Þyrla Landhelgisgæslunnar er nú á leið til Reykjavíkur með manninn. Þjóðvegurinn er ennþá lokaður og má gera ráð fyrir að svo verði allavega til klukkan 18:00 og jafnvel lengur samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni enda sé um að ræða stór ökutæki og vandkvæðum háð að flytja þau til. Ökumenn í 30 til 40 ökutækjum bíða þess nú að komast leiðar sinnar yfir brúna.

Uppfært 18:06:

Þyrla Landhelgisgæslunnar er nú lent með manninn við Landspítalann í Fossvogi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert