Björgunarsveitin Húnar á Hvammstanga hefur staðið í ströngu síðan óveður skall snarpt á nú seinnipartinn en á svæðinu er nú mikil veðurhæð og ofankoma. Þetta segir í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu en þar kemur fram að ökumenn hafi lent í vanda á brautinni inn að Hvammstanga, sunnan við Múla og á Holtavörðuheiði. Hefur sveitin komið um 20 manns á átta bílum til aðstoðar.
Í Stykkishólmi hefur verið ófærð víða innanbæjar og hið sama var uppi á teningnum í Grenivík. Tilkynnt var um skilti að fjúka á Ásbrú og var Björgunarsveit Suðurnesja kölluð út til að festa það.
Sveitir frá Svalbarðseyri og Þingeyjarsýslu hafa einnig aðstoðað vegfarendur er hafa fest bíla sína og á Suðurlandi hafa björgunarsveitir staðið vaktina við lokanir.
Sveitir á sunnanverðum Vestfjörðum hafa verið upplýstar um óvissuástand vegna snjóflóðahættu