Ölfus rýkur fram úr rest

Átakið nær til fólks á öllum aldri.
Átakið nær til fólks á öllum aldri. Ljósmynd/ Allir lesa

Þegar tvær vikur eru liðnar af landsleiknum Allir lesa hefur sveitarfélagið Ölfus rokið fram úr öðrum sveitarfélögum landsins og er meðallestur á íbúa rúmar 12 klukkustundir frá því að keppnin hófst.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá forsvarsmönnum átaksins. Þar segir að gífurleg stemning hafi myndast hjá liðum um allt land sem keppist um að verja sem mestum tíma í lestur fræðirita, skáldsagna, matreiðslubóka og myndasagna

„Nóg er enn eftir af keppninni sem lýkur þann 21. febrúar og ljóst að fyrrum lestrarmeistarar í Vestmannaeyjum verða að gefa í til að hafa roð við Ölfusingum. Enn eru konur yfir 70% lesenda vefsins allirlesa.is en margir telja karlmenn lesa öllu meira af blöðum og tímaritum en bókum og útskýri það kynjahallann í keppninni,“ segir í tilkynningunni.

„ Lestrarhestar landsins hafa samanlagt lesið 21.000 klukkustundir, sem jafngildir 833 dögum, eða vel yfir tveimur árum! Nánar má kynna sér landsleikinn á vefnum allirlesa.is þar sem einfalt er að skrá sig til leiks og lesa til sigurs.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert