Óvissustig vegna snjóflóða

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Veðurstofan hefur lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóða á sunnanverðum Vestfjörðum. Austan stormur er á svæðinu og snjókoma.

„Spáð er áframhaldandi stormi og að það bæti í snjókomu í kvöld. Ekki er talin hætta í byggð eins og er, en fylgst verður með aðstæðum. Reiknað er með því að veðrið gangi niður annað kvöld,“ segir í tilkynningu frá Veðurstofunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert