Aukið jöfnuð sjúkratryggða

Samkeppniseftirlitið segir reglugerðina hafa aukið jöfnuð sjúkratryggða.
Samkeppniseftirlitið segir reglugerðina hafa aukið jöfnuð sjúkratryggða. Friðrik Tryggvason

Reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í lyfjakostnaði fara ekki gegn markmiðum samkeppnislaga. Öryrkjabandalag Íslands óskaði eftir athugun á því hvort svo væri og telur Samkeppniseftirlitið að svo sé ekki. Eftirlitið segir reglugerðina hafa aukið jöfnuð sjúkratryggða. 

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Samkeppniseftirlitsins. 

Öryrkjabandalagið beindi erindi sínu til Samkeppniseftirlitsins í maí 2013 um að stofnunin kannaði hvort ákvæði 6. gr. reglugerðar um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í lyfjakostnaði fæli í sér óhæfilegar hindranir og takmörkunum á frelsi í atvinnurekstri og gengi þannig gegn markmiði samkeppnislaga.

Taldi Öryrkjabandalagið líkur á því að reglugerðin stæði í vegi fyrir því að afslættir sem apótek veittu af lyfjum kæmu viðskiptavinum þeirra til góða á sama hátt og áður vegna þess að ekki væri hægt að veita afslátt af hlut sjúklings í lyfinu, heldur nytu sjúkratryggingar einnig afsláttarins ef reglur kvæðu á um opinbera greiðsluþátttöku.

Afstaða Samkeppniseftirlitsins liggur nú fyrir og segir m.a. í bréfi stofnunarinnar til ráðuneytisins , dags. 2. feb. sl. að eftir sem áður hafi apótek tök á því að keppa í verði og þjónustu.

Í bréfi Samkeppniseftirlitsins segir að leiða megi líkur að því að breytingarnar á greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands í lyfjakostnaði hafi að einhverju leyti dregið úr hvata lyfsala til að veita viðskiptavinum sínum afslátt af þeim hluta í lyfjaverði sem þeir eiga að greiða, þegar Sjúkratryggingar Íslands greiða stærstan hluta lyfjaverðsins.

Á hitt beri þó að líta að fyrir kerfisbreytinguna hafi ekki allir sjúkratryggðir einstaklingar notið afsláttar af lyfjaverði eða setið við sama borð í þeim efnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert