Byrja skimun í byrjun næsta árs

Kristján Oddsson og Kristján Þór Júlíusson undirrita samninginn.
Kristján Oddsson og Kristján Þór Júlíusson undirrita samninginn. Ljósmynd/Velferðarráðuneytið

Í dag undirrituðu Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra og Kristján Oddsson, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, samkomulag um undirbúning skimunar fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi hjá aldurshópnum 60-69 ára. Velferðarráðuneytið leggur 25 m.kr. til verkefnisins og Krabbameinsfélagið 20 m.kr. en áætlaður heildarkostnaður er 45 m.kr. Stefnt er að því að hefja skimun í byrjun næsta árs.

Í frétt velferðarráðuneytistins um undirritun samningsins segir að krabbamein í ristli og endaþarmi sé þriðja algengasta krabbameinið á heimsvísu og önnur algengasta ástæða dánarmeina af völdum krabbameins á Vesturlöndum, líkt og fram kemur í meðfylgjandi greinargerð.

„Á árunum 2006 til 2010 greindust að meðaltali 74 karlar og 60 konur á ári á Íslandi með þessa tegund krabbameins og var meðalaldur við greiningu um 70 ár,“ segir í tilkynningnunni.

Sunna Guðlaugsdóttir ásamt heilbrigðisráðherra.
Sunna Guðlaugsdóttir ásamt heilbrigðisráðherra. Ljósmynd/Velferðarráðuneytið

„Í fyrra fól heilbrigðisráðherra Krabbameinsfélaginu að leggja fram tillögur um hvernig standa mætti að undirbúningi og innleiðingu hópleitar að krabbameinum í ristli. Hinn 31. ágúst 2015 skilaði Krabbameinsfélagið ráðherra samantekt með tillögum sínum, ásamt viðamikilli greinargerð dr. Sunnu Guðlaugsdóttur, sérfræðings í meltingarsjúkdómum og verkefnisstjóra hjá Krabbameinsfélaginu, þar sem færð eru rök fyrir mikilvægi skimunar, settar fram tillögur um hvernig best verði að henni staðið og fjallað um nauðsynlegan undirbúning sem þarf að sinna svo unnt sé að koma slíkri leit í framkvæmd. Greinargerðina vann Sunna í samráði við velferðarráðuneytið og Embætti landlæknis.“

Krabbameinsfélag Íslands mun hefja undirbúning að því að skimunin verði tekin upp en gert er ráð fyrir að undirbúingsvinnunni verði lokið í byrjun október 2016 og að reglubundin skimun geti hafist í byrjun árs 2017. Undirbúningsvinnan felur í sér kaup á greiningartæki og öðrum búnaði, forritun þriggja gagnagrunna, uppfærslu/breytingu á sjúkraskrárkerfum og vinnu læknis á undirbúningstímanum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert