Harður árekstur á Miklubraut

mbl.is/Þórður

Fjórar bifreiðar lentu í hörðum árekstri á Miklubraut í Reykjavík skammt frá Grensásveg á fimmta tímanum í dag. Þar á meðal var bifreið á vegum Ferðaþjónustu fatlaðra með tvo farþega innanborðs. Engan sakaði þó alvarlega og enginn fluttur á sjúkrahús samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Slökkviliðið hreinsaði upp olíu á svæðinu í kjölfarið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert