Harður árekstur undir Hafnarfjalli

Frá Borgarnesi.
Frá Borgarnesi. mbl.is/Rax

Harður árekstur varð undir Hafnarfjalli við Fiskilæk í dag. Mikil hálka er á svæðinu og að sögn lögreglu missti bílstjóri annars bílsins stjórn á ökutækinu í hálkunni og lenti hann framan á hinum bílnum.

Bílarnir eru mikið skemmdir og voru farþegar og ökumenn fluttir á sjúkrahúsið á Akranesi til skoðunar. Talið er að allir hafi sloppið með minniháttar meiðsli. Loka þurfti veginum um tíma en hann er nú opinn að nýju.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert