MR áfram í Gettu betur

Lið MR.
Lið MR. Skjáskot/RÚV

Lið Menntaskólans í Reykjavík komst áfram í næstu umferð í spurningakeppni framhaldsskólanna Gettu betur í kvöld eftir að hafa unnið sigur á liði Fjölbrautaskólans í Garðabæ. MR sigraði FG með 37 stigum gegn 15 og var yfir allan tímann eftir hraðaspurningar í byrjun. Lið MR er því komið í undanúrslit keppninnar.

Lið Menntaskólans við Sund og Kvennaskólans í Reykjavík eigast við næsta föstudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert