Strætó hækkar gjaldið

mbl.is/Sigurður Bogi

Ný gjaldskrá Strætó tekur gildi 1. mars. Þá mun staðgreiðslugjaldið hækka um 5% og verður 420 kr., en á móti mun Strætó taka upp staðgreiðslugjald fyrir börn og ungmenni yngri en 18 ára, öryrkja og aldraða og verður það 210 kr. Er verðhækkun ætlað að mæta almennum kostnaðarhækkunum.

Tímabilskort og farmiðar hækka á bilinu 2,9-4,2%.

Fram kemur í tilkynningu, að samhliða nýrri gjaldskrá muni ný árskort verða tekin upp fyrir aldraða og öryrkja sem seld verða á 19.900 kr.

„Árskortið veitir aðgang að strætisvögnum Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Hægt er að kaupa kortin á heimasíðu Strætó og fá þau afhent gegn framvísun viðeigandi skilríkja í miðasölu Strætó í Mjódd. Nýja árskortið fyrir aldraða og öryrkja ætti að koma vel út fjárhagslega, auk þess sem aukin þægindi felast í því að geta keypt kort til eins árs í stað afsláttarfarmiða með takmörkuðum fjölda ferða.

Engin breyting verður á árskortum fyrir nemendur 18 ár og eldri eða árskortum fyrir börn og ungmenni.

Helstu breytingarnar eru að nú verða almennir farmiðar seldir 20 saman, eða með sama fyrirkomulagi og í tilviki afsláttarfarmiða, og munu farmiðaspjöldin hækka um 2,9%.

Mesta hækkunin mun verða á eins-  og þriggja daga kortum, eftir breytinguna mun eins dags kort kosta 1.500 kr. og þriggja daga kort 3.500 kr.,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert