Vann tæpar 300 milljónir króna

Heppinn lottóspilari er tæplega 300 milljónum króna ríkari eftir að tölurnar lágu fyrir í Eurojackpot í kvöld. Hlaut hann annan vinning óskiptan. Vinningsmiðinn var keyptur í borginni Leipzig í Þýskalandi. 

Þriðji vinningurinn gekk einnig út en hann gaf 53,6 milljónir í aðra hönd. Miðinn var keyptur í Finnlandi.

Enginn var hins vegar með fyrsta vinninginn sem hljóðaði upp á rúmlega tvo milljarða króna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert