Hálka í Þrengslum

mbl.is/Malín Brand

Það eru hálkublettir á Hellisheiði en hálka er í  Þrengslum. Hringvegurinn er annars að mestu auður á Suðurlandi en nokkur hálka er á öðrum vegum þar. Verið er að hreinsa Mosfellsheiði.

Hálka er einnig víða á Vesturlandi og Vestfjörðum en sums staðar er snjóþekja og skafrenningur eða él. Verið er að opna Þröskulda. Þæfingsfærð er í Álftafirði á Snæfellsnesi.

Það snjóar á Norðurlandi en flestir vegir eru þó vel færir og hreinsun vega er langt komin.

Hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Austurlandi. Vatnsskarð eystra er ófært eins og er en þar er verið að opna. Hálka er með Suðausturströndinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert