Kannabis í mannlausum bíl

Þegar lögreglan lýsti inn í bílinn sáust þrír pokar með …
Þegar lögreglan lýsti inn í bílinn sáust þrír pokar með meintum kannabisefnum. Kristinn Ingvarsson

Lögreglan á Suðurnesjum fann í gærkvöld fíkniefni í mannlausri bifreið, sem skilin hafði verið eftir á Garðvegi. Lögreglumenn voru við hefðbundið eftirlit þegar þeir komu auga á bifreiðina sem var utan vegar á gatnamótum Garðvegar og Útgarðsvegar.

Þegar lýst var inn í bifreiðina sáust í opnu hanskahólfi þrír pokar með meintum kannabisefnum. Lögregla hóf leit að ökumanni hennar og fann í skemmu sem hann hafði til afnota tvo poka með kannabisefnum.  Ökumaðurinn heimilaði leit í bifreiðinni og játaði akstur undir áhrifum fíkniefna og eign sína á kannabispokunum.

Í bifreið annars ökumanns sem handtekinn var vegna fíkniefnaaksturs fundust fíkniefni í sólskyggni. Hinn þriðji ók án ökuskírteinis á ótryggðri bifreið og sá fjórði neitaði að láta í té sýni á lögreglustöð. Hann var því sviptur ökuréttindum til bráðabirgða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert