Lögregluvakt við Reynisfjöru

Reynisfjara.
Reynisfjara. mbl.is/Brynjar Gauti

Innanríkisráðherra og iðnaðar- og viðskiptaráðherra, í samráði við lögregluna á Suðurlandi, hafa í ljósi endurtekinn atburða og nú síðast hörmulegs banaslyss í dag ákveðið að frá og með morgundeginum verði lögregluvakt við Reynisfjöru.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.

Þá verði gerð áhættugreining á svæðinu í samræmi við tillögur nefndar sem innanríkisráðherra skipaði á síðasta ári til að gera tillögur um öryggi ferðamanna. Í  kjölfar niðurstöðu hennar verður tekin ákvörðun um frekari aðgerðir til að tryggja öryggi ferðamanna sem fara um svæðið,“ segir í tilkynningunni.

Fyrirhugað er að gera sambærilega áhættugreiningu fyrir aðra fjölsótta ferðamannastaði.

Undanfarnar vikur hefur á vettvangi Stjórnstöðvar ferðamála verið unnið að tillögum að aðgerðum sem nauðsynlegt er að grípa til þegar á þessu ári og lúta almennt að öryggi ferðamanna. Verða þær m.a. ræddar á næsta fundi Stjórnstöðvarinnar sem verður í lok febrúar.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert