Alls voru 3.407 vinningshafar dregnir út í útdrætti Happdrættis Háskóla Íslands í kvöld og fá þeir greiddar út samtals 103,8 milljónir króna. Tveir fengu hæsta vinning í aðalútdrætti, 5 milljónir króna hvor, en fimm fá milljón krónur í sinn hlut.
Þá fá 11 miðaeigendur 500.000 krónur.
„Milljónaveltan gekk ekki út í þetta skipti og verður hún því 30 milljónir í næsta útdrætti 10.mars næstkomandi. Einhver heppinn miðaeigandi gæti orðið ævintýralega heppinn og hreppt hinn stóra,“ segir í tilkynningu frá Happadrættinu.