Verð mjólkurvara hækkað en ávaxta lækkað

Sverrir Vilhelmsson

Niðurstöður verðkönnunar sem verðlagseftirlit ASÍ framkvæmdi þann 5. febrúar síðastliðinn sýna að verð á mjólkurvörum hefur hækkað áberandi mest af þeim 140 vörutegundum sem kannaðar voru. Á sama tíma hafa ávextir lækkað í verði, sé borið saman við sambærilega könnun sem gerð var 16. mars í fyrra.

Sem dæmi um hækkanir á mjólkurvöru má nefna að smjörvi 400 gr. hefur hækkað í verði um 9-20%, MS rækjuostur um 3-8% og rjómaostur til matargerðar 400 gr. um 4-8%.

Könnunin var gerð á sama tíma í eftirtöldum verslunum: Bónus, Krónunni, Nettó, Fjarðarkaupum, Samkaupum Úrval, Hagkaupum, Víði og Iceland.

Minnstar verðbreytingar í verslun Fjarðarkaupa

Allar verslanirnar eiga það sameiginlegt að vera að hækka verð á mjólkurvörum og lækka verð á ávöxtum. Aðrar vörur eru ýmist að lækka eða hækka í verði. Áberandi er að Fjarðarkaup er eina verslunin sem er með sama verð og í fyrra í um þriðjungi tilvika.

Pepsi Max hækkar í verði en melónur lækka

Af öðrum vörum má nefna að gos er frekar að hækka í verði og nemur hækkunin allt að 50% á 2 l. af Pepsi Max. Hinsvegar er töluverð lækkun á Betty Crocker chocolade fudge Brownie mix eða um allt að 23%.  

Sem dæmi um lækkanir á ávöxtum má nefna að kílóverð af vatnsmelónu lækkar í verði um 32-53% og af gulri melónu um 19-40%. Fleiri vörur eru að lækka í verði m.a. sykur, hveiti, kaffi og Glitra uppþvottavélatöflur.  

Þær verðbreytingar sem birtar eru miða við breytingar á verði verslana milli verðkannana verðlagseftirlits ASÍ frá 16. mars 2015 til 4. febrúar 2016. Rétt er að árétta að mæld eru þau verð sem eru í gildi á hverjum tíma í versluninni og geta tilboðsverð haft áhrif á verðbreytingar einstakra vara. Aðeins er um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert