Báðir útskrifaðir í gær

mbl.is/ Styrmir Kári

Meiðsli tveggja einstaklinga sem fluttir voru á slysadeild Landspítala í gær eftir harðan árekstur á gatnamótum við Straumsvík reyndust ekki alvarleg og voru báðir útskrifaðir í gær.

Frétt mbl.is: Harður árekstur við Straumsvík.

Um árekstur tveggja bifreiða var að ræða og voru tveir sjúkrabílar og slökkviliðsbíll sendir á vettvang.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert