Fyrsti vinningur Eurojackpot gekk ekki út að þessu sinni, né heldur var neinn með allar jókertölur réttar. Tveir heppnir Þjóðverjar hrepptu annan vinning, 79 milljónir króna hver.
Tölur kvöldsins voru: 7, 20, 21, 33, 41. Stjörnutölur voru: 1, 2. Jókertölur voru 9, 4, 8, 1, 2.
Tveir Þjóðverjar hrepptu sem fyrr segir 2. vinning og sjö Þjóðverjar og einn Spánverji hrepptu 3. vinning, tæpar 7 milljónir kr. hver.