Fjórhjól ferðamanna valt í ísingu

Horft yfir Úlfarsfell.
Horft yfir Úlfarsfell. mbl.is/RAX

Tveir erlendir ferðamenn urðu fyrir óhappi síðdegis í dag þegar fjórhjól þeirra valt í hlíðum Úlfarsfells skammt utan Reykjavíkur.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru ferðamennirnir á vegslóða þegar hjólið valt vegna ísingar. Annar mannanna slapp með lítilsháttar meiðsl og varð hinum ekki meint af.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert