Jómfrúin opnaði á nýjan leik í dag

Jómfrúin opnaði í hádeginu í dag en staðurinn var lokaður í rúmlega mánuð vegna framkvæmda. Var síðast opið á Þorláksmessu en annar eigandi staðarins, Jakob Einar Jakobsson sem er sonur Jakobs Jakobssonar stofnanda Jómfrúarinnar, segir að eftir 20 ára rekstur hafi verið kominn tími á endurbætur. „Það er búið að snerta á hverjum fersentímetra hér innanhúss til þess að gera staðinn betri fyrir viðskiptavini og starfsfólk,” segir Jakob léttur í lund.

Aðspurður hvort aðdáendur smurbrauðsins hafi beðið eftir opnun staðarins með eftirvæntingu kveður Jakob já við. „Ég gerðist svo frakkur að forwarda síma Jómfrúarinnar í farsímann hjá mér. Hann hefur hringt yfir 50 sinnum á dag síðustu daga, fólk er óþreyjufullt,” segir hann.

Jakob og Birgir Bieltvedt keyptu Jómfrúnna á síðasta ári og var þá stefnt að því að gera ákveðnar breytingar á rekstri staðarins en fyrir utan framkvæmdir á húsnæðinu þá hefur afgreiðslutíminn einnig verið lengdur.

„Við erum að herja á markað sem við höfum ekki sinnt áður,” segir Jakob um það að hafa opið lengur fyrir þá sem vilja gæða sér á smurbrauði eftir klukkan 18. „Við ætlum að hafa opið til kl. 22 fimmtudaga til laugardaga fram til 1. apríl,” segir Jakob, en eftir 1. apríl verður opið fram á kvöld alla daga vikunnar.

Að sögn Jakobs er fjölgun ferðamanna helsta ástæða þess að þeir félagar ákváðu að lengja opnunartímann. „Við ætlum að sækja meira í útlendinga. Þegar það er aðeins einn staður með þessa sérstöðu, þá hlýtur að vera markaður fyrir hann á kvöldin; Jómfrúin er og mun vera heimili smurbrauðsins á Íslandi.”

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert