Vélsleðakappi sem fór um 150 metra með snjóflóði þegar það féll nærri Skjaldbreið í gær þakkar góðum búnaði að ekki fór verr. Félagar hans gátu grafið hann upp skömmu eftir að snjóflóðið féll þar sem hann var búinn snjóflóðapoka og snjóflóðaýlu.
Maðurinn slapp lítillega lemstraður úr flóðinu og segir það hafa skipt miklu að allir sem voru með honum hafi einnig verið vel búnir ýlum, stöngum og skóflum.
Greint er frá þessu á vef RÚV en vélsleðamaðurinn vildi ekki láta nafn síns getið. „Ég náði að snúa sleðanum við og reyndi að keyra út úr flóðinu. Það tókst ekki og ég fór einhverja 100 metra eða meira á sleðanum. En ég náði að opna pokann minn strax og hékk svo á sleðanum eins lengi og ég gat,“ sagði hann í samtali við RÚV.